Eitthvað á ég af myndum af prjóninu mínu. Þarna eru vettlingar sem Davíð Leó fékk og trefill fyrir Óla Magga. Svo er ég búin að prjóna fleirri sjöl og trefla og eitthvað af sokkum.... en ég er víst búin að gefa þetta áður en ég tek mynd af því.
Það er best að halda áfram fyrst ég er byrjuð. Ég gerði nokkur kort í Ölveri heldinga 26-28 mars.
Þetta eru bæði fermingakort og afmæliskort.
Annars er ég að prjóna og sauma út þessa stundina.
Þá eru Páskarnir að líða undir lok. Ég hef nú ekki sett mikið hérna inn. Er þó alltaf eitthvað að gera í höndunum.
Ég prjónaði þetta sjal úr garni sem hún Ágústa spann og gaf mér.
Ég og fjöldksylda gáfum svo Ingu þetta í útskriftargjöf þegar hún útskrifaðist með framhaldsskólapróf úr blokkflautu. Hún var með útskriftartónleika sem voru alveg dásamlegir og í lokin spilaði hún og börnin hennar eitt lag saman.
Við Inga og Kristín Viðja fórum í Ölver með skrappgrúppunni minni. Við fórum e. vinnu á fimmtudaginn og komum heim á sunnudaginn. Það var alveg frábært að komast og skrappa í góðra kvenna hópi. Ég hef ekki verið afkastamikil og var þetta góð lota. Gerði 5 síður (sem telst nú ekki mikið ) og var alsæl með afköstin. Gyða Björg og mamma voru með krakkaskottin á Stokkseyri því Venni var í L0ndon. Set með myndir af síðunum mínum.
Tuesday, August 19, 2008
Hér kemur nýjasta barnabarnið. Kristín Viðja Vernharðsdóttir. Hún fæddist 24 júlí. Hún er þvílík dásemd (eins og öll hin) að ömmuhjartað er alveg að springa.
Mér tókst loks að gera kort sem ég er sæmilega ánægð með. Er að æfa mig að nota prismalitina mína. Þeir eru æðislegir og ég kann vel við þá. Þarf bara meiri æfingu
Það fæddist lítil prinsessa í nótt. Hún heitir Kristín Viðja Vernharðsdóttir og var um 15 merkur og 50 cm. Ég er ekki búin að sjá hana en stefni á austurferð um helgina. Óli, Vala og Davíð Leó eru flutt á Keili. Óli er að fara í skólann og þau eru búin að fá íbúð. Ég fer í heimsókn til þeirra anna kvöld og fæ þá að knúsa litla karl. Læt hér fylgja mynd sem var tekin af hópnum mínum 31. maí í veislunni hans Davíðs Leó