Thursday, July 24, 2008

Og hópurinn stækkar

Það fæddist lítil prinsessa í nótt. Hún heitir Kristín Viðja Vernharðsdóttir og var um 15 merkur og 50 cm. Ég er ekki búin að sjá hana en stefni á austurferð um helgina.
Óli, Vala og Davíð Leó eru flutt á Keili. Óli er að fara í skólann og þau eru búin að fá íbúð. Ég fer í heimsókn til þeirra anna kvöld og fæ þá að knúsa litla karl. Læt hér fylgja mynd sem var tekin af hópnum mínum 31. maí í veislunni hans Davíðs Leó





1 comment:

Anna said...

Innilega til hamingju Bubba mín. Hlakka til að fá að sjá mynd af prinsessunni :o)